Heim / Laxveiði / Laxveiði á Suðurlandi / Sog – Þrastarlundur

Sog – Þrastarlundur

Sogið er 19 kílómetra löng lindá sem fellur úr Þingvallavatni. Það er vatnsmesta lindá landsins með meðalrennsli upp á 110 m³/s. Mikil lax- og silungagengd er í ánni, en hún minnkaði þó til muna þegar Ljósafossstöð, fyrsta af þremur virkjunum árinnar, var byggð. Hinar virkjanirnar eru Steingrímsstöð og Írafossstöð. Sogið mætir Hvítá og myndar Ölfusá við Öndverðarnes.

Í Soginu eru tvö stöðuvötn, Álftavatn sem er grunnt og Úlfljótsvatn sem er fyrir neðan Dráttarhlíð sem skilur það frá Þingvallavatni. Álftavatn er eina almennilega vaðið á ánni þangað til hún var brúuð við Alviðru árið 1905.

Þrastalundarsvæðið á sér marga fasta aðdáendur sem þekkja svæðið og vita hvar ganga má að laxinum nánast sem vísum.
Svæðið er þægilegt yfirferðar og fagurt. Stórlaxar sjást öðru hverju í Kúagili og hafa margir veiðimenn lent í ævintýrum hér.

Einungis er veitt á eina stöng á Þrastarlundarsvæðinu og nær tímabilið frá 24. júní til 23. september ár hvert.

x

Check Also

Sog – Alviðra

Sogið er 19 kílómetra löng lindá sem fellur úr Þingvallavatni. Það er vatnsmesta lindá landsins með meðalrennsli upp á 110 m³/s. Mikil lax- og silungagengd ...