Heim / Laxveiði / Laxveiði á Vesturlandi / Þverá í Þverárdal

Þverá í Þverárdal

Þverá er í Þverárdal, í um 140 km fjarlægð frá Reykjavík.
Áin rennur í Haukadalsá við veiðistaðinn Blóta, rétt fyrir neðan veiðihús Haukadalsár í Dölum.

Þverá er lítil og nett einnar stanga á og er áin 13 kílómetra löng með aragrúa ómerktra hylja.  Áin hlykkjast niður eyðidal og myndar marga skemmtilega hylji og strengi á leið sinni niður dalinn. Enginn vegur er við ánna og því þurfa veiðimenn að vera tilbúnir að hafa fyrir veiðinni og ganga 10-20 kílómetra yfir daginn.

Að vera við veiðar í Þverá er frábær skemmtun og ævintýri líkast og því kjörin fyrir þá sem eru til í að leggja land undir fót í skemmtilegri veiðiferð.
Áin hentar einstaklega vel fyrir alla þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í fluguveiðinni. Fyrir þá sem hafa gaman af nettri veiði og útivist þá er þessi á algjörlega kjörin.

Veitt er á eina stöng á dag í Þverá í Þverárdal.

x

Check Also

Skuggi – Hvítá

Hvítá í Borgarfirði er 117 km löng jökulá sem aðskilur Borgarfjarðarsýslu frá Mýrasýslu. Uppspretta Hvítár er við Eiríksjökul, hún rennur út í hafið nálægt Borgarnesi. ...