• Blanda 4

    Fantagóð veiði í kristaltærri á

  • Blanda 4

    Fantagóð veiði í kristaltærri á

Blanda svæði 4

Blanda 4 - Veiðistaðavefurinnn

Blanda svæði 4 er jökulá í Austur-Húnavatnssýslu á Norðvesturlandi. Áin rennur í gegnum Blönduós.

Blanda á uppruna sinn í Hofsjökli og í hana renna fjölmargar bergvatnsár af húnvetnsku heiðunum.

Áin er um 125 km að lengd, sem gerir hana að áttundu lengstu á landsins, og er vatnasviðið um 2300 ferkílómetrar.

Blanda rennur ofan af Eyvindarstaða- og Auðkúluheiði sem er um 18 kílómetra langt gljúfur. Blöndugil, ofan í Blöndudal og síðan um Langadal og til sjávar í Húnafirði sem liggur inn af Húnaflóa.

Blanda hefur skipað sér öruggan sess sem ein af bestu laxveiðiám Íslands. Vandfundin er sú á sem gefur betri veiði í upphafi tímabils og er stórlaxastofninn i ánni sérlega öflugur.

Alltaf hefur mikill lax verið í henni en áður en hún var virkjuð var hún mjög gruggug svo að laxinn sá sjaldnast beituna.

Húkk var helsta veiðiaðferðin en það er úr sögunni eftir að jökulaurinn hvarf.

Blöndu er skipt í fjögur veiðisvæði:

  • Svæði I er neðan Ennisflúða
  • Svæði II er frá Breiðavaðslæk að heimreið að Æsustöðum
  • Svæði III nær frá Æsustöðum að útfalli Blönduvirkjunar
  • Svæði IV er fyrir framan Blönduvirkjun

Blanda 4 er efsta veiðisvæði Blöndu og er einnig kallað Refá. Blanda er í raun hætt að renna þarna um nema það komi yfirfall.

Svæðið nær frá veiðistað númer 400 sem er Litla Klif og upp að veiðistað númer 490, Rugludalshyl. Veiðimenn eru beðnir að taka það til athugunnar að veiði er ekki leyfileg frá Litla Klifi og niður að aðfalli.

Blanda 4 er búið að vera að slá í gegn undanfarið, enda er um að ræða ótrúlega fagurt umhverfi og kristaltæra á. Hér er áin miklu minni um sig og hægt að sjá hverja hreyfingu í blátærum hyljum í fallegum giljum. Þar sem áin er mun nettari en á neðri svæðunum er hentugt að nota léttari græjur.

Þetta Svæði er með þrjár stangir á dag út tímabilið sem nær frá 20. júní til 20. september ár hvert.

Leyfilegt er að veiða á flugu á þessu svæði og kvóti hefur verið ákveðinn 3 laxar á stöng á dag. Sleppa á öllum löxum eru 70cm eða stærri.

Aðgengi að veiðistöðum á þessu svæði er misjafnt og æskilegt að menn séu nokkuð vel á sig komnir til að komast að einhverjum stöðunum í giljunum.

Með veiðileyfum fylgir ágætt veiðihús sem er rúmgott og með flest til að hægt sé að slaka á eftir veiði dagsins.
Vatnsstaða: Þegar líða tekur á sumarið er árviss viðburður að hækka tekur í Blöndulóni sem nær hámarki þegar vatnsborðið fer að flæða yfir stífluna við lónið. Er þá talað um að Blanda fari á yfirfall. Þegar Blanda fer á yfirfall hækkar yfirborð árinnar nokkuð og litast hún talsvert með þeim afleiðingum að áin verður erfiðari til veiða. Verð veiðileyfa í ágúst mánuði tekur mið af þeim möguleika að áin geti hugsanlega orðið illveiðanleg, enda ómögulegt að spá nokkuð fyrirfram um hvort eða hvenær áin fari á yfirfall. Ekki er hægt að  bera ábyrgð á því sé áin á yfirfalli þegar veiðimenn eru við ánna. Á undanförnum árum hefur verið mjög misjafnt hvenær áin hefur litast, sumarið 2015 litaðist áin t.a.m. lítið sem ekkert og gerðu margir frábæra veiði það árið langt fram í september.

Blanda 4 – skemmtilegar myndir

Vinsælar flugur:

Staðsetning:

x

Check Also

Blanda 1 neðsta svæði Blöndu

Blanda 1 er neðsta svæði Blöndu, sem er jökulá í Austur-Húnavatnssýslu á Norðvesturlandi og rennur í gegnum Blönduós, í um 240 km fjarlægð frá Reykjavík. ...