Heim / Laxveiði / Laxveiði á Norðurlandi / Blanda 2, Austur-Húnavatnssýslu

Blanda 2, Austur-Húnavatnssýslu

Blanda 2 - Veiðistaðavefurinnn

Blanda 2 er annað svæðið í Blöndu, sem er jökulá í Austur-Húnavatnssýslu á Norðvesturlandi og rennur í gegnum Blönduós, í um 240 km fjarlægð frá Reykjavík.
Hún á uppruna sinn í Hofsjökli en einnig renna í hana fjölmargar bergvatnsár af húnvetnsku heiðunum.
Áin er um 125 km að lengd, sem gerir hana að áttundu lengstu á landsins, og er vatnasviðið um 2300 ferkílómetrar.

Blanda rennur ofan af Eyvindarstaða- og Auðkúluheiði um 18 kílómetra langt gljúfur, Blöndugil, ofan í Blöndudal og síðan um Langadal og til sjávar í Húnafirði sem liggur inn af Húnaflóa.

Blanda hefur skipað sér öruggan sess sem ein af bestu laxveiðiám Íslands. Vandfundin er sú á sem gefur betri veiði í upphafi tímabils og er stórlaxastofninn i ánni sérlega öflugur.
Alltaf hefur mikill lax verið í henni en áður en hún var virkjuð var hún mjög gruggug svo að laxinn sá sjaldnast beituna og var húkk helsta veiðiaðferðin, en það er úr sögunni eftir að jökulaurinn hvarf.

Blöndu er skipt í fjögur veiðisvæði:

  • Svæði I er neðan Ennisflúða
  • Svæði II er frá Breiðavaðslæk að heimreið að Æsustöðum.
  • Svæði III nær frá Æsustöðum að útfalli Blönduvirkjunar
  • Svæði IV er fyrir framan Blönduvirkjun

Blanda 2 er skemmtilegt svæði þar sem veitt er á fjórar stangir og allt löglegt agn er leyfilegt út tímabilið sem nær frá 20. júní til 20. september ár hvert, þ.e. fluga, maðkur, og spónn.
Svæðið gefur oft glettilega góða veiði og sækja sömu hópar í það ár eftir ár.

Vel rúmt er um stangirnar fjórar sem leyfðar eru á þessu svæði og margir skemmtilegir veiðistaðir.

Veiðihúsið Móberg fylgir með svæði 2 og er þar um að ræða eitt herbergi pr stöng, eða allt húsið ef allar stangir eru verslaðar.

Blanda 2 – vinsælar flugur:

x

Check Also

Hallá, við Skagaströnd

Hallá er á norðurlandi sem fellur í Húnaflóa rétt utan við Skagaströnd 280 km fjarlægð frá Reykjavík. 10 mín akstursfjarlægð frá Blönduós. Þetta er 16 ...