Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Stóra Skálavatn

Veiðivötn – Stóra Skálavatn

Veiðivötn - Veiðistaðavefurinn

Stóra Skálavatn er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Veiðivötn eru vatnaklasi í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Stóra Skálavatn

Skálavatn er í námunda við skálasvæðið sjálft, beint við hlið Tjaldavatns og Nýjavatns. Þetta er 0.78 km2 vatn að flatarmáli, frekar grunnt ef miðað er við mörg vötnin, með mestu dýpt mælda 16 metra. Meðaldýptin er 5.6 metrar. Skálavatnið liggur í 568 metrum yfir sjávarmáli.

Skálavatn er er eitt af þeim vötnum sem lengi hefur verið stundað. Í vatninu eru margir fallegir veiðistaðir og vænir urriðar veiðast þar ár hvert í bland við bleikjur.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Stóra Skálavatn

Stóra Skálavatn

Upphafsmynd: Jón P Guðjónsson

Myndir frá vatninu:

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...