Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Pyttlur

Veiðivötn – Pyttlur

Veiðivötn - Veiðistaðavefurinn

Pyttlur eru í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Veiðivötn eru vatnaklasi í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Pyttlur

Pyttlur eru lítil vötn á milli Nýjavatns og Skálavatns. Stóra Pyttla er nokkuð djúp en með nokkra fína veiðistaði.

Í Pyttlum er eingöngu urriði og á hverju ári veiðist þó nokkuð af flottum fiskum þarna.

Veiðistaðir eru nokkrir og um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti.

Upphafsmynd: Jón P Guðjónsson

Myndir frá vötnunum:

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...