Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Stóra Fossvatn

Veiðivötn – Stóra Fossvatn

Veiðivötn - veidistadir.is

Stóra Fossvatn er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Um er að ræða vatnaklasa í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Stóra Fossvatn

Stóra Fossvatn er annað Fossvatnana, er afskaplega fallegt 0.85 km2 vatn sem í raun er komið fyrst að þegar komið er í Veiðivötn, utan Skyggnisvatns. Þetta vatn er í rúmlega 575 m hæð yfir sjávarmáli með mestu dýpt 15 metra mælda. Meðaldýpt er hinsvegar um 6.7 metrar.

Í Stóra Fossvatni er eingöngu urriði, og sagt er að stofninn sé einn sá hreinasti stofn ísaldarurriða á Íslandi. Stærð veiddra urriða í Stóra Fossvatni er mjög algengt að sé í kringum 4 ~ 5 pund, en stærri fiskar veiðast inn á milli. Þetta vatn er eitt það vinsælasta í veiðivötnum.

Eingöngu er leyfð fluguveiði í Stóra Fossvatni.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

 

Skemmtilegar myndir frá vatninu:

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...