Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Skyggnisvatn

Veiðivötn – Skyggnisvatn

Veiðivötn - Veiðistaðavefurinn

Skyggnisvatn er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Veiðivötn eru vatnaklasi í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Skyggnisvatn

Skyggnisvatn er stórt gígvatn í jaðri Veiðivatnasvæðisins til suðurs, og er í raun fyrsta vatnið sem komið er að þegar haldið er í veiðivötn. Töluverð keyrsla er frá afleggjaranum og niður að Skyggnisvatni. Þetta er allstórt vatn, um 1.32 km2 að flatarmáli og dýpst tæplega 24 metrar. Meðaldýpið í Skyggnisvatni er 15 metrar. Það liggur í tæplega 562 metrum yfir sjávarmáli. Vatnið getur litast í vatnavöxtum þar sem það tengist Tungnaá.

Í vatninu er bæði urriðar og bleikjur og er bleikjan nokkuð væn og pattaraleg þarna. Ágæt og jöfn veiði er í Skyggnisvatni ár hvert.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Upphafsmynd: Skyggnisvatn – Ljósmyndari: Örn Óskarsson

 

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...