Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Stóra Hraunvatn

Veiðivötn – Stóra Hraunvatn

Veiðivötn - Veiðistaðavefurinn

Stóra Hraunvatn er í Veiðivötnum sem óhætt sé að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Veiðivötn eru vatnaklasi í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Stóra Hraunvatn

Stóra Hraunvatn er eins og nafnið gefur til kynna stórt og mikið vatn, næst nyrst, en er stærst allra vatna í Hraunvötnunum, og einnig það gjöfulasta.
Eins og í öðrum vötnum á Hraunvatnasvæðinu liggur töluvert hraun að vatninu að sunnan, en eftir því sem norðar í vatnið er farið verður vatnið sandorpnara.

Í Stóra Hraunvatni er eingöngu urriði, líkt og í öðrum vötnum á Hraunvatnasvæðinu, og oftar en ekki þá koma stærstu fiskarnir af Hraunvatnasvæðinu einmitt úr Stóra Hraunvatni ár hvert, en í vatninu eru ákaflega góð vaxtarskilyrði.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Stóra Hraunvatn

Stóra Hraunvatn

Upphafsmynd: Stóra Hraunvatn – Ljósmynd.: Örn Óskarsson

Myndir frá vatninu:

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...