Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Litla Skálavatn

Veiðivötn – Litla Skálavatn

Veiðivötn - veidistadir.is

Litla Skálavatn er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Um er að ræða vatnaklasa í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Litla Skálavatn

Litla Skálavatn er afskaplega fallegt vatn sem er inn á milli hraunklappa og gíga. Þetta vatn er um 0.18 km2 að flatarmáli og dýpst um 28 metrar með 3.9 metra í meðaldýpt. Vatnið er í 567 metrum yfir sjávarmáli.

Í vatninu er eingöngu urriði sem getur orðið mjög vænn en þess bera að geta að mikið er um festur í Litla Skálavatni vegna þess að vatnið liggur í hrauni og því mikið um grjót í botninum.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Veiðivötn - Litla Skálavatn

Myndir frá vatninu:

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...