Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Eskivatn

Veiðivötn – Eskivatn

Veiðivötn - veidistadir.is

Eskivatn er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Um er að ræða vatnaklasa í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Eskivatn

Eskivatn, er lítið og fallegt 0.11 km2 vatn við hlið Langavatns. Þetta vatn er í tæplega 565 m hæð yfir sjávarmáli. Eskivatn er greinilega einhverskonar gígvatn með mestu dýpt 32 metra mælda. Meðaldýpt er hinsvegar um 9 metrar.

Í Eskivatni er mest af bleikju í minni kantinum, og mikið af henni, en einnig er þar er einnig hægt að hitta á urriða. Gott er að nota litlar púpur, og jafnvel blóðorm, krókinn, og Peacock, þegar egnt er fyrir bleikjuna.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Eskivatn - Veiðivötn

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...