Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Skeifan

Veiðivötn – Skeifan

Skeifan er eitt vatna Veiðivatna sem óhætt er að segja að ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Um er að ræða vatnaklasa í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Skeifan

Skeifan er skeifulaga vatn við hlið Stóra Hraunvatns til austurs. Þetta er alveg afskaplega fallegt vatn þar sem bæði hraun fellur að vatninu, en einnig sand og malarstrandir.

Það er um marga flotta veiðistaði að velja í Skeifunni, en þess ber að geta að töluverður gangur er samt inn í Austurbotn þó það sé allt mjög greiðfært og auðveldur gangur. Einungis er um urriða að ræða í Skeifunni, eins og í öðrum Hraunvötnum, en það borgar sig að hafa sterka tauma hér því urriðinn getur orðið mjög stór.

Veiðistaðir eru samt nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Skeifan - Hraunvötn

 Upphafsmynd: Skeifan – Ljósm.: Örn Óskarsson

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...