Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Litla Breiðavatn

Veiðivötn – Litla Breiðavatn

Veiðivötn - veidistadir.is

Litla Breiðavatn er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Um er að ræða vatnaklasa í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Litla Breiðavatn

Litla Breiðavatn stendur við hlið Breiðavatns að austanverðu, er afskaplega fallegt ca 0.15 km2 vatn. Þetta vatn er í rúmlega 563 m hæð yfir sjávarmáli og nokkuð djúpt á köflum.

Í Litla Breiðavatni er eingöngu urriði sem er virkilega fallegur og yfirleitt í stærri kantinum.
Eingöngu er leyfð fluguveiði í Litla Breiðavatni.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Litla Breiðavatn

Litla Breiðavatn

Upphafsmynd: 3.3 kg urriði veiddur af Sigurgeir Sigurpálssyni í Litla Breiðavatni sumarið 2015

Myndir frá vatninu:

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...