Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Steinatjörn – Skagaheiði
  • Steinatjörn á Skaga

    Eitt af mörgum veiðivötnum fyrir landi Hrauns

  • Steinatjörn á Skaga

    Eitt af mörgum veiðivötnum fyrir landi Hrauns

  • Steinatjörn á Skaga

    Eitt af mörgum veiðivötnum fyrir landi Hrauns

Steinatjörn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en…

Umsögn Veiðistaðavefsins

Verð veiðileyfa
Aðkoma að vatninu
Umhverfi
Almenn ánægja

Gott

Umsögn : Umsögn : Hér gefur að líta stjörnugjöf Veiðistaðavefsins. Þessi stigagjöf hefur EKKI áhrif á heildarstigagjöf notenda sem gefur að líta fyrir aftan nafn veiðisvæðis. Þetta mat er sjálfstætt og er eingöngu mat aðstandenda Veiðistaðavefsins.

.

Steinatjörn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Steinatjörn er um 0,2 km2 að flatarmáli, og er við hlið Neðstavatns, beint við hliðina á þjóðveginum. Þetta er eitt af mörgum veiðivötnum sem bærinn Hraun á Skaga selur veiðileyfi í. Þar sem vatnið liggur við þjóðveginn er aðkoman mjög góð.
Utan Steinatjörn eru einnig seld veiðileyfi í vötnin Aravatn, Kelduvíkurvatn, Hörtnárvatn, Ölvesvatn, Steinatjörn, Neðstavatn, og Djúpavatn, og Kolluvatn.

Öll þessi vötn eru á norð-austanverðum Skaga og eiga það sameiginlegt að vera fremur grunn.
Bæði bleikja og urriði eru í þessum vötnum, frá 1 til 2 pund að stærð, en þó er mestmegnis bleikja í Neðstavatni og Kolluvatni.

Ágæt veiði getur verið í ósnum þar sem lækur rennur úr Neðstavatni í Steinatjörn. Þar er lítill hylur og geta fiskar leynst þar, en fara skal með varúð til að styggja hann ekki.
Einnig getur víkin næst veginum verið gjöful þó hún líti ekki út fyrir að vera það. Þar er töluvert grjót í botninum sem urriðinn leynist í. Gott er að nota litlar svartar pöddur, og jafnvel tökuvara, þó það sé vissulega ekki nauðsynlegt.

Fiskarnir í Steinatjörn eru frá hálfu pundi upp í um 2 pund, og bæði bleikja og urriði eru í vatninu.

Hægt er að leigja veiðihús sem liggur við Kolluvatn, og annað sem liggur á milli Kolluvatns og Kelduvíkurvatns fyrir vægt gjald.
Veiðileyfið gildir fyrir Kolluvatn, Hraunsvatn, Djúpavatn, Neðstavatn, og Steinatjarnir, og eru seld á bænum Hraun.
Leyfi í önnur vötn eru seld sérstaklega.

Steinatjörn – Vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...