Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Neðstavatn – Skagaheiði
  • Neðstavatn á Skaga

    Eitt af mörgum veiðivötnum fyrir landi Hrauns

  • Neðstavatn á Skaga

    Eitt af mörgum veiðivötnum fyrir landi Hrauns

  • Neðstavatn á Skaga

    Eitt af mörgum veiðivötnum fyrir landi Hrauns

Neðstavatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en…

Umsögn Veiðistaðavefsins

Verð veiðileyfa
Aðkoma að vatninu
Umhverfi
Almenn ánægja

Mjög gott

Umsögn : Umsögn : Hér gefur að líta stjörnugjöf Veiðistaðavefsins. Þessi stigagjöf hefur EKKI áhrif á heildarstigagjöf notenda sem gefur að líta fyrir aftan nafn veiðisvæðis. Þetta mat er sjálfstætt og er eingöngu mat aðstandenda Veiðistaðavefsins.

.

Neðstavatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Neðstavatn er um 0,3 km2 að flatarmáli, og er á milli Kolluvatns og Djúpavatns. Úr Neðstavatni rennur lækur í Steinatjörn og er einungis skotspölur þar á milli, sem og frá Neðstavatni í Djúpavatn.
Bæði bleikja og urriði eru í þessum vötnum, frá 1 til 2 pund að stærð, en þó er mestmegnis bleikja í Neðstavatni, en þó er þar mjög vænn urriði einnig.

Oft gefur ágætlega að kasta flugunni með kantinum á vatninu því oftar en ekki virðist fiskurinn hanga þar, frekar en úti í vatninu.

Þetta er eitt af mörgum veiðivötnum sem bærinn Hraun á Skaga selur veiðileyfi í. Að vatninu liggur malarvegur sem er um 1 km langar og er fólksbílafær.
Utan Neðstavatns eru einnig seld veiðileyfi í vötnin Aravatn, Kelduvíkurvatn, Hörtnárvatn, Ölvesvatn, Steinatjörn, Neðstavatn, og Djúpavatn, og Kolluvatn.

Öll þessi vötn eru á norð-austanverðum Skaga og eiga það sameiginlegt að vera fremur grunn.

Hægt er að leigja veiðihús sem liggur við Kolluvatn, og annað sem liggur á milli Kolluvatns og Kelduvíkurvatns fyrir vægt gjald.
Veiðileyfið gildir fyrir Kolluvatn, Hraunsvatn, Djúpavatn, Neðstavatn, og Steinatjarnir, og eru seld á bænum Hraun.
Leyfi í önnur vötn eru seld sérstaklega.

Upphafsmynd fengin úr bæklingnum “Veiði á Skagaheiði”

Neðstavatn – vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...