Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Nýrað

Veiðivötn – Nýrað

Veiðivötn - Veiðistaðavefurinn

Nýrað er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Veiðivötn eru vatnaklasi í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Nýrað

Nýrað er beint við hliðina á Rauðagíg til norðurs og er í raun einungis aðskilið vatn frá Rauðagíg í lágri vatnsstöðu. Þessi 2 vötn verða að einu vatni þegar vatnsstaðan er há. Nýrað er fremur lítið vatn með auðveldri aðkomu.

Einungis er urriði í Nýranu eins og í Rauðagíg, en urriðinn í Rauðagíg er löngu orðinn frægur fyrir stærð sína, en hann á það samt til að vera nokkuð styggur.

Veiðistaðir eru samt nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Nýrað

Nýrað

Upphafsmynd. Nýrað – Ljósm.: Örn Óskarsson

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...