Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Kvíslarvatnsgígur

Veiðivötn – Kvíslarvatnsgígur

Veiðivötn - veidistadir.is

Kvíslarvatnsgígur er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Um er að ræða vatnaklasa í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Kvíslarvatnsgígur

Kvíslarvatnsgígur er nokkuð magnþrunginn staður, gígvatn sem ekki er mjög stórt, en nokkuð djúpt. Kvíslarvatnsgígur liggur rétt við hlið Kvíslarvatns.

Eingöngu er um að ræða urriða í Kvíslarvatnsgíg sem getur orðið mjög vænn. Þetta er staður sem allir ættu að kíkja við í á ferð um svæðið.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

 

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...