Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Ónefndavatn

Veiðivötn – Ónefndavatn

Veiðivötn - Veiðistaðavefurinn

Ónefndavatn er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Veiðivötn eru vatnaklasi í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Ónefndavatn

Ónefndavatn er nokkuð látlaust vatn við hlið Nýjavatns og Breiðavatns. Þetta vatn er um 0.22 km2 að flatarmáli, mjög aðgrunnt þó mesta dýpi þess sé um 19 metrar og meðaldýpi um 5.9 metrar.

Í vatninu er eingöngu urriði, en ekki veiðast mjög margir í vatninu á ári hverju. Hinsvegar er meðalþyngdin mjög góð þar sem urriðinn í þessu vatni er oft mjög stór. Það er því um að gera að reyna við þetta vatn.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Ónefndavatn

Ónefndavatn

Upphafsmynd: 10.2 punda urriði úr Ónefndavatni. Ljósmyndari er Leifur Örn Leifsson

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...