Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Tjaldvatn

Veiðivötn – Tjaldvatn

Veiðivötn - Veiðistaðavefurinn

Tjaldvatn er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins séu Veiðivötn.
Veiðivötn eru vatnaklasi í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Tjaldvatn

Tjaldvatn er lítið og grunnt vatn beint við hliðina á tjald- og skálasvæði Veiðivatnasvæðisins. Þetta vatn er 0.09 km2 að flatarmáli og einungis rúmlega meter í meðaldýpt. Dýpst er það í kringum Kerið, sem liggur að Skálavatni, en þar hefur það verið mælt 9.7 metrar. Tjaldvatn liggur í rúmlega 567 metrum yfir sjávarmáli.

Í vatninu er er bleikja og ekki fer miklum sögum af veiði í Tjaldvatni undanfarin ár, þó vatnið hafi átt sín góðu ár líka. Helst er að reyna við Kerið svokallað.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Tjaldvatn

Tjaldvatn

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...