Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Fremra Ónýtavatn

Veiðivötn – Fremra Ónýtavatn

Veiðivötn - veidistadir.is

Fremra Ónýtavatn er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Um er að ræða vatnaklasa í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Fremra Ónýtavatn

Fremra Ónýtavatn er strax við hliðina á Ónýtavatni til suðurs, og er fremur lítið ca 0.20 km2 að flatarmáli. Það er fremur grunnt en dýpi er inn á milli.

Í vatninu er eingöngu urriði, en ekki veiðast þarna margir fiskar á hverju ári.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Fremra Ónýtavatn

Fremra Ónýtavatn

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...