• Hólmavatn í Dölum

    Góð bleikju og urriðaveiði

  • Hólmavatn í Dölum

    Góð bleikju og urriðaveiði

  • Hólmavatn í Dölum

    Góð bleikju og urriðaveiði

  • Hólmavatn í Dölum

    Góð bleikju og urriðaveiði

Hólmavatn í Dölum

Hólmavatn er á Hólmavatnsheiði, norður af bænum Sólheimum í Laxárdal í um 180 km fjarlægð frá Reykjavík, og um 30 km frá Búðardal. Það er um 1 km2 að stærð og í um 190 m hæð yfir sjávarmáli.

Ekið er um Bröttubrekku í áttina að Búðardal, ef komið er að sunnan, annars farið hefðbundnar leiðir frá Norðurlandi eða Vestfjörðum. Rétt áður en komið er að Laxá í Dölum er beygt upp Laxárdal á þjóðvegi 59 og ekið áleiðis 24,8 km að bænum Sólheimum þar sem veiðimenn skrá sig. Þaðan er um 5 km vegur upp á heiði, en hann er ekki greiðfær fólksbílum, þó að hægt sé að aka þar á vel útbúnum og háum fjórhjóladrifsbílum. Jepplingar og jeppar henta þar að sjálfsgöðu best. Einnig er hægt að aka um Holtavörðuheiði, en sú leið er aðeins 10 km lengri frá Reykjavík.

Einungis má veiða landi Sólheima, eða frá útfalli austur fyrir vatnið og norður að þeim punkti þar sem Reiðgötuvatn liggur að vatninu – sjá bláa línu á korti.
Nokkuð góð veiði er í vatninu, or er bæði urriði og bleikja í vatninu. Bleikjan virðist hinsvegar á undanhaldi. Algeng stærð fiska er 1-2 pund.

Leyfilegt er að veiða í Hólmavatni frá morgni til kvölds, en athugið samt að skráning inn á svæðið þaref að vera á milli klukkan 7:00 og 22:00.
Veiðitímabilið hefst ekki fyrr en um miðjan júní, eða þegar vegurinn að vatninu er orðinn fær, og því lýkur 30. september.

Heimlt er að veiða með flugu, maðki, og spón. Öll netalögn er stranglega bönnuð.
Nokkuð góð og jöfn veiði er allt sumarið.

Hægt er að tjalda endurgjaldslaust við vatnið á eigin ábyrgð og í samráði við landeiganda, end þar er þó enga hreinlætisaðstöðu að finna.
Veiðimenn verða að skrá sig við komu á bænum Sólheimum áður en haldið er til veiða, en sýna þarf Veiðikortið og skilríki. Einnig fá veiðimenn veiðiskýrslu, sem þarf að skila útfylltri við lok veiða. Aðeins er heimilt að koma til veiða milli 7:00 og 22:00. Öll umferð á mótorhjólum / fjórhjólum er bönnuð nema í samráði við veiðivörð. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd korthafa. Hundar eru bannaðir á svæðinu.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum: Guðbrandur Ólafsson á Sólheimum, S: 858-1961 eða 434-1299.

x

Check Also

Seleyri við Borgarfjarðarbrú

Seleyri er við Borgarfjarðarbrú og telst því til strandveiða, en fjarlægðin er um 73 km frá Reykjavík. Þarna er töluvert af sjóbirtingi og sjóbleikju, og ...