Núpá er dragá sem á upptök sín á hálendinu ofan Núpdals og leynir verulega á sér. Áin á sameiginlegan ós með Haffjarðará á Löngufjörum við utanverðar Mýrar og er í eðli sínu silungsveiðiá, með laxavon.
Þessi á lætur ekki mikið yfir sér en á marga vænlega veiðistaði þar sem hún rennur lygn á milli malareyrar og grasbakka. Núpá er lítil og nett á sem hentar vel fyrir fluguveiði.
Hafbeitarlaxi var sleppt í Núpá til endurveiða fyrir allmörgum árum og gafst sú tilraun ágætlega og kom ánni á kortið með stórum löxum allt að 22 pund. Það er ekki gert lengur eftir að hafbeitarstöðin í Lárósi gaf upp öndina og veiðast kannski 20 laxar hvert sumar núna í Núpá.
Bleikja og sjóbirtingur ganga í ánna. Ekki eru seld leyfi í ánna.