Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Kvíslarvatn

Veiðivötn – Kvíslarvatn

Veiðivötn - veidistadir.is

Kvíslarvatn er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Um er að ræða vatnaklasa í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Kvíslarvatn

Kvíslarvatn er lítið 0.03m2 vatn strax við hlið Eskivatns. Þetta vatn er í tæpum 565 m yfir sjávarmáli og fremur grunnt, með meðaldýpi ca 3 metra. Mesta dýpi er hinsvegar 9 metrar.

Í Kvíslarvatni veiðist bæði urriði og bleikja. Mest er um bleikju sem er yfirleitt fremur smá, en stærri fiskar veiðast inn á milli, og ár hvert veiðist urriði í Kvíslarvatni sem nær allt að 5 pundum.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

 

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...