Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Veiðivötn – Litlisjór

Veiðivötn – Litlisjór

Veiðivötn - Veiðistaðavefurinn

Litlisjór er í Veiðivötnum sem óhætt er að segja að séu ein rómuðustu, gjöfulustu, og frægustu veiðivötn landsins.
Veiðivötn eru vatnaklasi í Landmannaafrétti sem samanstendur af allt að 50 vötnum, sem mörg hver eru sprengigígar. Um er að ræða bæði lítil sem stór vötn sem eru í um 570 ~ 590 metrum yfir sjávarmáli.
Flestir telja veiðivatnasvæðið eitt það fallegasta á landinu.

Litlisjór

Litlisjór er stærsta vatnið á Veiðivatnasvæðinu, um 9.2 km2 að flatarmáli, og liggur í 587 metrum yfir sjávarmáli. Vatnið er dýpst um 16.5 metrar, en annars er það með meðaldýpi uppá 7.2 metra.

Í vatninu er eingöngu urriði sem haldið er við með seiðasleppingum ár hvert, enda hrygningarskilyrði fremur léleg í Litlasjó. Margrir skemmtilegir veiðistaðir eru í þessu langa og ákaflega gjöfula vatni. Það er margur risinn sem er deginn á land ár hvert úr Litlasjó.

Veiðistaðir eru nokkrir, en það er um að gera að reyna aðra staði en þá sem merktir eru á korti einnig.

Upphafsmynd: Jón P Guðjónsson

 

Myndir frá vatninu:

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...