Ísafjarðará er í botni Ísafjarðar í um 295 km fjarlægð frá Reykjavík, en um 155 km fjarlægð frá Ísafjarðarbæ.
Þetta er frekar stutt og köld á sem heldur laxi. Í ánni er einnig falleg bleikja.
Í ánni eru nokkrir fallegir veiðistaðir, og er aðkoma nokkuð góð fyrir flesta bíla. Ekki er mælt með að fara langt inneftir með ánni ef farið er á mjög lágum bílum.
Það er Stangaveiðifélag Ísafjarðar sem er með ánna á leigu, en það er áhugamannafélag um stangveiði á Ísafirði.
Þetta er tveggja stanga á sem hefur gefið að meðaltali um 50 laxa á sumri, en SVFÍ hefur haft það á prjónunum að rækta upp ánna.
Ísafjarðará – Skemmtilegar myndir: