Elliðavatn í útjaðri Reykjavíkur
Elliðavatn er í Heiðmörk, útivistarsvæði í útjaðri Reykjavíkur og Kópavogs en það tilheyrir bæði Reykjavík og Kópavogi.
Hægt er að komast að vatninu með því að fara Heiðmerkurafleggjarann og í gegnum Kópavog til að komast að Vatnsendalandi. Til að komast í Hólmsá má beygja til norðurs rétt austan við Heiðmerkurafleggjarann í áttina að Gunnarshólma. Einnig má komast að ánni með því að beygja til norðurs nokkru austan við Gunnarshólma, eða leggja við brúna yfir hana á Suðurlandsvegi og ganga þaðan upp eða niður með ánni.
Elliðavatn er vinsælasta veiðivatn höfuðborgarsvæðisins og afar gjöfult. Elliðavatn er í um 73m. hæð yfir sjávarmáli og er um 1,8 km2 að flatarmáli. Mesta dýpi er rúmir 2m. en meðaldýpi er um 1m. Í Elliðavatn renna Bugða og Suðurá. Hólmsá heitir áin nokkru ofar, áður en hún skiptist í Bugðu og Suðurá.
Veiðisvæðið er Elliðavatn fyrir löndum Elliðavatns og Vatnsenda, auk Hólmsár og Nátthagavatns, þaðan sem Hólmsá rennur.
Óheimilt er að veiða í Suðurá. Ekki má veiða nær Elliðavatnsstíflu en 50 metra.
Í vatninu eru bleikja, urriði, lax og stöku sjóbirtingur. Bleikjan var ríkjandi í vatninu en síðasta áratug hefur urriðinn sótt í sig veðrið og er nú að verða algengasta fiskitegundin í vatninu. Lax og sjóbirtingur ganga í vatnið úr Elliðaánum og upp í Hólmsá. Urriðinn í vatninu hefur verið að stækka og síðasta sumar veiddust þar allt upp í sex punda urriðar.
Veiðitímabilið hefst á sumardaginn fyrsta ár hvert, lýkur 15. september og daglegur veiðitími nær frá kl 7:00 til 24:00.
Jöfn veiði er í vatninu. Vatnið er þó sérstaklega vinsælt í maí. Mjög góð veiði fyrir Elliðavatn er yfirleitt í maí, júní og júlí.
Bestu líkurnar til að veiða urriða eru seint á kvöldin og fyrripart dags.
Eingöngu er leyfð veiði með flugu, maðk og spóni, en í Hólmsá má aðeins veiða á flugu!
Nefna má margar góðar flugur en mest veiðist á litlar silungapúpur eins og t.d. Tailor, Mobutu, Peter Ross, Peacock, Watson‘s Fancy, svo að einhverjar séu nefndar. Þegar líður á sumarið og fiskurinn tekur að vaka eru þurrflugur góður kostur. Einnig er gott að nota litlar straumflugur fyrir urriðann, eins og t.d. Black Ghost, Mickey Finn, rauðgulan Nobbler, Dentist o.fl.
Umsögn Veiðistaðavefsins
Verð veiðileyfa
Aðkoma að vatninu
Umhverfi
Möguleiki á afla
Mjög gott
Umsögn : Umsögn : Hér gefur að líta stjörnugjöf Veiðistaðavefsins. Þessi stigagjöf hefur EKKI áhrif á heildarstigagjöf notenda sem gefur að líta fyrir aftan nafn veiðisvæðis. Þetta mat er sjálfstætt og er eingöngu mat aðstandenda Veiðistaðavefsins.
Elliðavatn – Vinsælar flugur:
- Nobblerar
- Olive nobbler
- Héraeyra
- Mobuto
- Krókurinn
- Black Knat
- Pheasant tail
- Killer
- Nobblerar
- Black Ghost
- Dýrbítar
- Whatsons Fancy