
Elliðavatn er staðsett í Heiðmörk, á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs. Vatnið er eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er afar auðvelt að nálgast það frá báðum bæjarfélögum. Elliðavatn er tilvalið fyrir þá sem elska náttúruna, fjölbreytta útivist og góða veiði.
Veiðisvæði og fiskitegundir í Elliðavatni
Elliðavatn er þekkt fyrir að vera gjöfulasta veiðivatn á svæðinu. Vatnið liggur í 73 metra hæð yfir sjávarmáli og er um 1,8 km² að stærð. Helstu fiskitegundirnar í vatninu eru bleikja, urriði, lax og sjóbirtingur. Bleikja var lengi ríkjandi en á undanförnum árum hefur urriðinn orðið mun algengari.
Lax og sjóbirtingur ganga úr Elliðaánum í vatnið og áfram í Hólmsá, þar sem oft veiðast stórir og fallegir urriðar. Veiðisvæðið nær yfir sjálft vatnið, Vatnsendaland, Hólmsá og Nátthagavatn.
Veiðitímabil og veiðiaðferðir í Elliðavatni
Veiðitímabilið í Elliðavatni hefst á sumardaginn fyrsta og lýkur þann 15. september. Leyfilegur veiðitími er frá kl. 07:00 til 24:00. Vatnið er sérstaklega vinsælt á vorin, en maí, júní og júlí eru jafnan bestu veiðimánuðirnir. Besti tíminn til að setja í urriða er snemma dags eða á kvöldin.
Leyfilegt er að nota flugu, maðk og spón í vatninu, en í Hólmsá er eingöngu leyfð fluguveiði. Vinsælar flugur eru litlar silungapúpur eins og Tailor, Mobutu, Peter Ross og Watson’s Fancy. Þegar líður á sumarið reynast þurrflugur og straumflugur einnig vel.
Leiðir að Elliðavatni og Hólmsá
Til að komast að vatninu er hægt að aka eftir Heiðmerkurvegi eða fara í gegnum Kópavog að Vatnsendalandi. Ef halda á í Hólmsá er hægt að beygja til norðurs rétt austan við Heiðmerkurafleggjarann eða leggja við brúna á Suðurlandsvegi.
⚠️ Reglur á veiðisvæðinu
Vinsamlegast gangið vel um svæðið og takið allt rusl með ykkur.
Óheimilt er að aka utan vega.
Bátar eru aðeins leyfðir með sérstöku leyfi.
Veiðimenn eru beðnir um að tilkynna merktan urriða til Laxfiska ehf.
🛑 Mikilvægar takmarkanir
Í Hólmsá má aðeins veiða á flugu.
Óheimilt er að veiða í Suðurá.
Ekki má veiða nær Elliðavatnsstíflu en 50 metra.
Umsögn Veiðistaðavefsins
Verð veiðileyfa
Aðkoma að vatninu
Umhverfi
Möguleiki á afla
Mjög gott
Umsögn : Umsögn : Hér gefur að líta stjörnugjöf Veiðistaðavefsins. Þessi stigagjöf hefur EKKI áhrif á heildarstigagjöf notenda sem gefur að líta fyrir aftan nafn veiðisvæðis. Þetta mat er sjálfstætt og er eingöngu mat aðstandenda Veiðistaðavefsins.
Elliðavatn – Vinsælar flugur:
- Nobblerar
- Olive nobbler
- Héraeyra
- Mobuto
- Krókurinn
- Black Knat
- Pheasant tail
- Killer
- Nobblerar
- Black Ghost
- Dýrbítar
- Whatsons Fancy
Veiðistaðavefurinn















