Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Tangavatn & Tangavatnstjörn

Tangavatn & Tangavatnstjörn

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Tangavatn og Tangavatnstjörn eru á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Tangavatn og Tangavatnstjörn sem eru í eigu bæjarins Vikur er öllu sunnar en Þrístikla og er við hlið Þorgeirsvatns.
Tangavatn er um 0,4 km2 að flatarmáli og í því er einhver fiskur, en ekki er vitað til að fiskur sé í Tangavatnstjörn sem er mun minni en Tangavatnið sjálft.
Léleg veiði er í vatninu, og enginn vegur liggur þangað. Hægt er að ganga frá t.d. Selvatni nyrðra.

Veiðileyfi og upplýsingar má fá á bænum Vikur í síma 453 6614.

Tangavatn og Tangavatnstjörn – veðrið á svæðinu

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...