
Skálavatn á Skagaheiði er veiðivatn með vænum urriða og smábleikju í einstæðu og ósnortnu náttúruumhverfi. Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja – þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir 200 metrum, og stórar klettaborgir breiða víða úr sér. Í lægðum á milli þeirra liggja veiðivötn sem vart eiga sinn líka hér á landi.
Skálavatn er suður af Rangartjörnum nyrðri og Selvatns á Ketuvatnssvæði. Vatnið er 0,2 km² að stærð og geymir smábleikju sem getur orðið allt að 1 pund, auk væns urriða. Mikil grisjun hefur átt sér stað í Skálavatni í gegnum tíðina en það er mat manna að meira þurfi til.
Akstur og vegasamgöngur
Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km, en hún getur verið meira eða minna eftir því hvert í veiðivötnin skal haldið. Malarvegur liggur frá Skagaströnd og fyrir Skaga og tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Að Skálavatni liggur 8 km slæmur jeppaslóði frá Ketu að skála.
Upp að veiðivötnunum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir eru vel færir fyrir fólksbíla, aðrir krefjast fjórhjóladrifsbíls og sumir eru ekkert annað en troðningar sem geta spillst í rigningartíð.
Athugið: Allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar á Íslandi.
Veiðileyfi og upplýsingar
Áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda eða veiðiréttarhafa – þetta á einnig við þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum. Veiðileyfi fyrir Skálavatn selur Halldóra á bænum Ketu í síma 616 8040. Hún getur einnig veitt upplýsingar um gistimöguleika á svæðinu.
Skálavatn – vinsælar flugur:
- Mickey Finn
- Héraeyra
- Peacock
- Pheasant Tail
- Gray Ghost
- Black Nobbler
- Black Ghost
Veiðistaðavefurinn










