Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Kelduvötn – Skagaheiði

Kelduvötn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Kelduvötn eru á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Kelduvötn eru rétt sunnan við Skálavatn og er um að ræða 2 vötn, Efra- og Neðra-Kelduvatn. Í vatninu eru bæði bleikja og urriði, en sagt er að bleikjan í vötnunum sé gríðar væn, og allt að 7 punda fiskar hafi veiðst þar.

Enginn vegur liggur að vatninu, en til að komast að vatninu er gengið frá Skálavatni sem er um 10 mínútna gangur.
Veiðileyfi selur Hrefna á bænum Ketu og er hægt að nálgast upplýsingar hjá henni í síma 453 6523.
Hún getur einnig gefið upplýsingar um gistimöguleika.

Upphafsmynd fengin úr bæklingnum “Veiði á Skagaheiði”

Kelduvötn – Vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...