• Haffjarðará

    Laxveiðiperla á Snæfellsnesi

  • Haffjarðará

    Laxveiðiperla á Snæfellsnesi

  • Haffjarðará

    Laxveiðiperla á Snæfellsnesi

Haffjarðará

Haffjarðará - Veiðistaðavefurinn

Haffjarðará er á Snæfellsnesi í um 120km fjarlægð frá Reykjavík og er ein af þekktustu laxveiðiám landsins. Þessi 25 km langa á rennur úr Oddastaðavatni og rennur til sjávar á Löngufjörum. Af þessum 25 km er veiðisvæðið sjálft um 16 km langt.
Áin rennur um stórbrotið umhverfi Rauðhálsahrauns og Eldborgarhrauns á leið til sjávar.

Mikið er af góðum veiðistöðum í ánni og má þar helst nefna Kvörnina, Grettir, Sauðhyl, Urðina, og Nesenda.

Þessi er að nokkuð sérstök að því leitinu til að hún er að öllu sjálfbær og engum seiðum er sleppt í hana.

Eingöngu er leyfð fluguveiði í Haffjarðará og er veiði leyfð á 6 stangir á dag út tímabilið sem nær frá 19. júní til 8. september ár hvert.
Veiðin hefur nokkuð sveiflast í ánni í gegnum tíðina eins og gengur og gerist og hefur farið úr tæplega 500 löxum og upp í rúmlega 2000 laxa yfir árið í seinni tíð. Árið 2015 gaf 1660 laxa.

Ákaflega notarlegt og gott veiðihús er við ánna þar sem skylt er að gista og er þar boðið upp á öll helstu þægindi.
Mikið er um fasta erlenda veiðimenn sem koma ár eftir ár í Haffjarðaránna.

Myndir fengnar að láni frá ýmsum stöðum

 

Haffjarðará – veðrið á svæðinu

x

Check Also

Skuggi – Hvítá

Hvítá í Borgarfirði er 117 km löng jökulá sem aðskilur Borgarfjarðarsýslu frá Mýrasýslu. Uppspretta Hvítár er við Eiríksjökul, hún rennur út í hafið nálægt Borgarnesi. ...