Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Vesturlandi / Hraunsfjarðarvatn á Snæfellsnesi
  • Hraunsfjarðarvatn á Snæfellsnesi

    Urriðaveiði í stórfenglegu umhverfi

  • Hraunsfjarðarvatn á Snæfellsnesi

    Urriðaveiði í stórfenglegu umhverfi

  • Hraunsfjarðarvatn á Snæfellsnesi

    Urriðaveiði í stórfenglegu umhverfi

  • Hraunsfjarðarvatn á Snæfellsnesi

    Urriðaveiði í stórfenglegu umhverfi

Hraunsfjarðarvatn á Snæfellsnesi

Hraunsfjarðarvatn er á Snæfellsnesi, við hliðina á Baulárvallarvatni, í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík, og um 15 km fjarlægð í suður frá bæði Grundarfirði og Stykkishólmi, á leið frá Vegamótum í norður. Hraunsfjarðarvatn er um 2,5 km2 að stærð og 84 m. djúpt, þar sem það er dýpst. Hraunsfjarðarvatn er í um 207 m. yfir sjávarmáli. Þaðan rennur Vatná í Baulárvallavatn. Nýja vatnaleiðin á Snæfellsnesi gerir það að verkum, að hægt er að aka nær alveg upp að vatninu á vegaslóða, frá vesturenda Baulárvallavatns, en síðasta spölinn þarf að fara fótgangandi (15 mín.) Slóði þessi er einungis fær fjórhjóladrifnum…

Umsögn Veiðistaðavefsins

Verð veiðileyfa
Aðkoma að vatninu
Umhverfi
Almenn ánægja

Ágætt

Umsögn : Umsögn : Hér gefur að líta stjörnugjöf Veiðistaðavefsins. Þessi stigagjöf hefur EKKI áhrif á heildarstigagjöf notenda sem gefur að líta fyrir aftan nafn veiðisvæðis. Þetta mat er sjálfstætt og er eingöngu mat aðstandenda Veiðistaðavefsins.

Hraunsfjarðarvatn er á Snæfellsnesi, við hliðina á Baulárvallarvatni, í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík, og um 15 km fjarlægð í suður frá bæði Grundarfirði og Stykkishólmi, á leið frá Vegamótum í norður.
Hraunsfjarðarvatn er um 2,5 km2 að stærð og 84 m. djúpt, þar sem það er dýpst. Hraunsfjarðarvatn er í um 207 m. yfir sjávarmáli. Þaðan rennur Vatná í Baulárvallavatn.

Nýja vatnaleiðin á Snæfellsnesi gerir það að verkum, að hægt er að aka nær alveg upp að vatninu á vegaslóða, frá vesturenda Baulárvallavatns, en síðasta spölinn þarf að fara fótgangandi (15 mín.) Slóði þessi er einungis fær fjórhjóladrifnum bílum.

Veiða má í öllu vatninu, og er jafnan góð veiði í vatninu allt sumarið, og þá sér í lagi í ljósaskiptunum.
Hraunsfjarðarvatn er einungis með urriða, sem gjarnan er vænn. Meðalþyngd fiska er 2-3 pund, en algengt er, að þar veiðist stærri fiskar, 5-6 pund, einkum í ljósaskiptunum.

Daglegur veiðitími við Hraunsfjarðarvatn er frá morgni til kvölds allt tímabilið sem hefst þegar ísa leysir og stendur fram til 30. september ár hvert.
Heimilt er að veiða með flugu, maðk, og spón. Fiskur getur legið djúpt og þá þarf að sökkva agninu. Spónn og maðkur gefa að jafnaði ágæta veiði.
Í ljósaskiptunum ferðast urriðinn inn á grunnið við landið og er þá gott að nota flugu.

Hægt er að tjalda endurgjaldslaust við vatnið, en engin sérstök hreinlætisaðstaða er við vatnið.
Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl og ganga vel um. Korthafar þurfa að skrá sig í Vegamótum og sýna þarf bæði Veiðikortið og persónuskilríki. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
Tengiliður á staðnum / veiðivörður: Veiðihúsið Straumfjarðará s: 435-6674. Vegamót s: 435-6690.

Hraunsfjarðarvatn – Vinsælar flugur:

x

Check Also

Flóðatangi

Flóðatangi er veiðisvæðið neðst í Norðurá við vatnamót Norðurár og Hvítar. Þetta er mjög aðgengilegt og fallegt tveggja stanga svæði og veiðist þar nokkuð af ...