Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Vesturlandi / Haukadalsvatn í Haukadal
  • Haukadalsvatn í Haukadal

    Sjóbleikjuveiði með laxavon

  • Haukadalsvatn í Haukadal

    Sjóbleikjuveiði með laxavon

  • Haukadalsvatn í Haukadal

    Sjóbleikjuveiði með laxavon

Haukadalsvatn í Haukadal

Haukadalsvatn er í Haukadal, skammt frá Búðardal í um 140km fjarlægð frá Reykjavík. Ekið er um Bröttubrekku og þaðan upp þjóðveg 587, rétt áður en komið er að Haukadalsá.

Haukadalsvatn er um 3,2 km2 að stærð, í 37 m. hæð yfir sjávarmáli og er mesta dýpi um 40 m.

Í vatninu er mest um 1-2 punda sjóbleikju, sem gengur upp í gegnum Haukadalsá, og er talsvert mikið af henni. Töluvert af laxi gengur upp í Haukadalsvatn, en hann veiðist jafnan ekki á stöng, en þó eru þess dæmi samt.
Besta veiðin fæst jafnan þar, sem lækir renna í vatnið, og er leyfilegt ag fluga, maðkur, og spónn.
Daglegur veiðitími er frá morgni til kvölds út tímabilið sem spannar frá 1. maí til 30. september.
Haukadalsvatn er síðsumarsvatn og því er besti veiðitíminn frá miðjum júlí og fram í septemberlok.

Aðeins er heimilt að veiða í landi Vatns. Ekki má veiði innan við 100 metra frá ós. Veiðisvæðið nær þaðan og allt að gilinu. Veiðimörk eru merkt.

Handhafar Veiðikortsins geta tjaldað endurgjaldslaust við vatnið í samráði við landeiganda og á eigin ábyrgð.
Í Haukadal eru söguslóðir Eiríks rauða, föður Leifs heppna.
Það er stranglega bannað að skilja eftir sig rusl og aka utan vega. Korthafar eiga að skrá sig hjá landeigenda, Sigurði Jökulssyni að Vatni, og jafnframt sýna Veiðikortið og persónuskilríki. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum: Sigurður Jökulsson að Vatni, s; 434-1350.

Haukadalsvatn – vinsælar flugur:

x

Check Also

Flóðatangi

Flóðatangi er veiðisvæðið neðst í Norðurá við vatnamót Norðurár og Hvítar. Þetta er mjög aðgengilegt og fallegt tveggja stanga svæði og veiðist þar nokkuð af ...