• Bjarnafjarðará

    Skemmtileg sjóbleikjuá á Ströndum

  • Bjarnafjarðará

    Skemmtileg sjóbleikjuá á Ströndum

  • Bjarnafjarðará

    Skemmtileg sjóbleikjuá á Ströndum

  • Bjarnafjarðará

    Skemmtileg sjóbleikjuá á Ströndum

Bjarnarfjarðará

Bjarnafjarðará - Veiðistaðavefurinn

Bjarnarfjarðará er afar vinsæl sjóbleikjuá sem er staðsett í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu í um 300 km fjarlægð frá Reykjavík, og um 30 km fjarlægð frá Hólmavík. Talið er að upptök árinnar sé að finna í Goðadalsvötnum, en þaðan rennur Goðadalsá sem sameinst svo Sunnudalsá og verður að Bjarnafjarðará.

Þetta er mjög fallegt 7 km veiðisvæði með ágætu aðgengi að flestum stöðum.
Áin er vel þekkt sem góð sjóbleikjuá og geta menn vænst að lenda í góðri sjóbleikjuveiði þegar líður á sumarið og sjóbleikjugöngurnar byrja.
Einhver laxavon er í ánni auk bleikjunnar.

Leyfilegt er að veiða á 4 stangir í Bjarnarfjarðará út tímabilið sem nær frá 20. júní og nær til 20. september ár hvert.
Fluga, maðkur, og spónn er leyfilegt í ánni.

Gisting fylgir ekki með seldum veiðileyfum en Hótel Laugarhóll er við árbakkann þar sem veiðimönnum er bent á að athuga með gistingu.

Bjarnarfjarðará – vinsælar flugur:

Skemmtilegar myndir frá staðnum:

x

Check Also

Selá í Steingrímsfirði

Selá í Steingrímsfirði er í Strandasýslu á mörkum Hrófbergshrepps og Kaldrananesshrepps í um 275 km fjarlægð frá Reykjavík og einungis í um 15 km fjarlægð ...