Heim / Laxveiði / Laxveiði á Vesturlandi / Laxá á Skógarströnd
  • Laxá á Skógarströnd

    Lítil og viðkvæm laxveiðiá á Skógarströnd

Laxá á Skógarströnd

Laxá á Skógarströnd - Veiðistaðavefurinn

Laxá á Skógarströnd rennur frá Götuvötnum á Rauðamelsheiði um 10km leið til sjávar í Árnhúsavog.
Laxgengur hluti árinnar er hinsvegar einungis um 2 km. Blankur og Blængur eru þverár Laxár á laxgengum 2km kafla árinnar, og inn í þessar þverár gengur einnig lax.

Engin veiðileyfi eru seld í ánna, en landeigendur sjálfir ráðstafa veiðinni sem hefur verið að meðaltali um 130 fiskar á ári, en hefur þó sveiflast frá mjög lítilli veiði og upp í um 280 fiska.

 

Þessi á er gríðalega viðkvæm fyrir þurrkum og á það til að þorna alveg upp á mestu þurrkasumrum.
Veiðihús er við ánna, en þeir sem hafa áhuga á að kanna með leyfi er bent á að tala við landeigendur.
Bóndinn að Emmubergi er annar landeigenda og er með síma 438 1029.

Laxá á Skógarströnd – skemmtilegar myndir:

x

Check Also

Skuggi – Hvítá

Hvítá í Borgarfirði er 117 km löng jökulá sem aðskilur Borgarfjarðarsýslu frá Mýrasýslu. Uppspretta Hvítár er við Eiríksjökul, hún rennur út í hafið nálægt Borgarnesi. ...