Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Bjarnarvötn – Skagaheiði

Bjarnarvötn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Bjarnarvötn eru á Skagaheiði sem er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Bjarnarvötn eru 2 og eru sunnarlega á Skaga, og austan megin við Bjarnarfell.
Stærra Bjarnarvatnið er um 1.6 km2 að flatarmáli, en hitt er mun minna, en í heildina eru þau um 2.3 km2 að flatarmáli. Þessi vötn liggja í 140 m yfir sjávarmáli.

Eingöngu er urriði í Bjarnarvötnum, en heyrst hefur að veiði í þeim sé fremur dræm, en bændur leggja net í þessi vötn.
Til að komast að vötnunum er farið eftir 5 km jeppaslóða frá Gaukstöðum.
Veiðiréttur og veiðileyfasala er frá 4 bæjum, Gauksstöðum, Skefilsstöðum, Þorbjargarstöðum, og Hafragili.

Bjarnarvötn – veðrið á svæðinu

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...