Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Kelduvötn á Skagaheiði – bleikju og urriðaveiði

Kelduvötn á Skagaheiði – bleikju og urriðaveiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Kelduvötn eru tvö veiðivötn – Efra- og Neðra-Kelduvatn – rétt sunnan við Skálavatn á Skagaheiði. Vötnin liggja í fallegri og óspilltri heiðarlendi meðal klettaborganna sem einkenna svæðið. Í vötnunum eru bæði bleikja og urriði og er þetta vinsælt veiðisvæði meðal þeirra sem þekkja Skagaheiði.

Vegur og aðkoma

Skagaheiði er um 340 km frá Reykjavík. Svæðið er aðgengilegt með malarvegi frá Skagaströnd, en inn á heiðina liggja jeppaslóðar að veiðivötnunum. Sumir slóðar eru færir fyrir venjulega fólksbíla en aðrir krefjast fjórhjóladrifsbíls – og einhverjir eru svo slæmir að þeir eru ófærir í rigningu.
Að Kelduvötnum liggur enginn vegur. Þangað er gengið frá Skálavatni – um 10 mínútna ganga.
Athugið: Akstur utan vega er bannaður með lögum á Skagaheiði eins og annars staðar á Íslandi.

Veiðileyfi og upplýsingar

Áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda eða veiðiréttarhafa – þetta á einnig við þegar veiðivötn sem eru í afréttarlöndum. Veiðileyfi fyrir Kelduvötn selur Halldóra á bænum Ketu í síma 616 8040. Hún getur einnig veitt upplýsingar um gistimöguleika á svæðinu.

Kelduvötn – Vinsælar flugur:

%CODE_vedur_nordurland%

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...