
Brúará Spóastaðir er þekkt veiðisvæði á Suðurlandi, staðsett í um 85 km fjarlægð frá Reykjavík. Brúará er önnur stærsta lindá landsins, um 38 km löng, og sameinast Hvítá fyrir neðan Iðu. Veiðisvæðið nær yfir um 4,6 km kafla á austurbakka árinnar.
Fjölbreytt veiði í Brúará Spóastaðir
Í ánni veiðist helst bleikja, en á þessu svæði er einnig að finna urriða, sjóbirting og lax. Margir hafa upplifað ævintýralega veiði hér, en algengast er að menn noti litlar púpur og kasti andstreymis.
Leiðarlýsing og staðsetning
Ekið er yfir brúna við ána og tekin beygja til hægri í átt að Skálholti. Spóastaðir er næsti bær vestan við Skálholt, staðsettur á mörkum Biskupstungnabrautar og Skálholtsvegar.
Aðstaða og mikilvægar reglur
Lítill veiðikofi fylgir seldum veiðileyfum þar sem veiðimenn geta haft afdrep. Athugið að bakkinn gegnt Spóastöðum tilheyrir bænum Seli og er ekki innifalinn í leyfinu.
kki innifalinn í leyfinu.
Brúará – vinsælar flugur:
- Pheasant Tail
- Peacock
- Kibbi
- Rollan
- Higas SOS
- Rauður Sibbi
- Krókurinn
- Blóðormur
%CODE_vedur_sudurland%
Veiðistaðavefurinn










