
Breiðdalsá er falleg laxveiðiá í Breiðdal á Austurlandi, um 607 km frá Reykjavík og 80 km frá Egilsstöðum. Áin á upptök sín til fjalla þar sem Tinnudalsá, Suðurdalsá og Norðurdalsá renna saman og mynda Breiðdalsá sem rennur svo til sjávar hjá Breiðdalsvík.
Umhverfi Breiðdalsár er stórbrotið og aðgengi að veiðistöðum er mjög gott — bílfært er að langflestum stöðum.
Veiði í Breiðdalsá
Laxveiðitímabilið er frá 20. júní til 20. september og er veitt með 6 stöngum. Veiðisvæðið spannar alla Breiðdalsá, Tinnudalsá og Norðurdalsá. Meðalveiði frá árinu 2000 hefur verið um 680 laxar á ári.
Breiðdalsá er einnig með gjöfult silungasvæði þar sem veitt er frá 1. maí og út tímabilið.
Við ána er glæsilegt veiðihús með átta tveggja manna herbergjum, hvert með sérbaðherbergi. Í húsinu er gufubað og heitt pottur. Glæsilegt útsýni er yfir fjallahring Breiðdalsins.
sins.
Vinsælar flugur í Breiðdalsá
- Svartur Frances
- Friggi
- Snældur
- Rauður Frances
- Sunray Shadow
- Black and Blue
%CODE_vedur_austfirdir%
Veiðistaðavefurinn















