Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Efra Nesvatn – Skagaheiði

Efra Nesvatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Efra Nesvatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Nesvatn, eða Efra-Nesvatn eins og það er stundum kallað, er mun hærra uppi en önnur vötn sem fylgja sama veiðileyfi, eða í 30 metrum yfir sjávarmáli.
Vatnið er um 0,3 km2 að flatarmáli, en úr því rennur Nesá í Hörtnárvatn. Bæði bleikja og  urriði eru í vatninu, sem og í Nesá. Heyrst hefur að veiði sé allgóð í Nesá og því ættu allir sem eru að veiða hér að reyna fyrir sér í ánni.

Aðgengi að vatninu er eftiur 4 km löngum jeppaslóða.

Hægt er að panta gistingu í litlu veiðihúsi sem er í Skammargili sem er á milli Kolluvatns og Kelduvíkurvatns.
Veiðileyfið í Nesvatn nær einnig yfir veiðar í Nesvatn, Nesá, Hörtnárvatn, Hörtná, og Kelduvíkurvatn.
Veiðileyfi og upplýsingar er hægt að nálgast á bænum Hraun.

Upphafsmynd fengin úr bæklingnum “Veiði á Skagaheiði”

Efra Nesvatn – vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...