Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Torfadalsvatn – Skagaheiði
  • Torfadalsvatn

    Mjög gott veiðivatn á Skaga

  • Torfadalsvatn

    Mjög gott veiðivatn á Skaga

Torfadalsvatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Torfadalsvatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Torfadalsvatn er á norð-vestur hluta Skagatáar og blasir frá Þjóðveginum austanverðum. Þetta vatn er rúmlega 0,5 km2 að flatarmáli og er talið mjög gott veiðivatn með bæði urriða og bleikju. Fínt aðgengi er að vatninu.

Veiðiréttur og veiðileyfasala er á bæjunum Tjörn þar sem Sigurlaug Kristjánsdóttir er í síma 452 2874 og Höfn þar sem Vignir Sveinsson er í síma 452 4265.

Torfadalsvatn – vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...