Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Hraunhafnarvatn á Melrakkasléttu
  • Hraunhafnarvatn á Melrakkasléttu

    Skemmtileg urriða- og bleikjuveiði á norðausturlandi

  • Hraunhafnarvatn á Melrakkasléttu

    Skemmtileg urriða- og bleikjuveiði á norðausturlandi

Hraunhafnarvatn á Melrakkasléttu

Hraunhafnarvatn er stærst þriggja vatna innan Veiðikortsins á Melrakkasléttu. Hin vötnin eru Æðarvatn, og Arnarvatn, sem eru mun smærri en Hraunhafnarvatn.
Þessi vötn eru í Norðurþingi á Melrakkasléttu, og er Hraunhafnarvatn 3,4 km² að stærð, er dýpst um 3 m og liggur í 2 m hæð yfir sjávarmáli.

Hraunhafnará rennur í suðurenda vatnsins og frárennslið er um lágt eiði, sem kallast Hestamöl. Þjóðvegur nr. 85 liggur með norðanverðu vatninu.

Fjarlægð er um 610 km. frá Reykjavík sé farið um Hólaheiði og 10 km. frá Raufarhöfn að Hraunhafnarvatni. Vatnasvæðið liggur við þjóðveg nr. 85. Hraunhafnarvatn er við þjóðveginn og liggur hann við vatnið á malarifi sem er milli vatns og sjávar.

Veiði er heimil í landi Skinnalóns og má sjá merkingu á korti hvar má veiða. Bestu veiðistaðirnir í Hraunhafnarvatni eru við mölina og einnig með því að ganga inn með vatninu í átt að Hraunhafnará.

Vel hefur verið staðið að grisjun á smábleikju með netaveiði á svæðinu sem hefur aukið á meðalþyngd veiddra fiska. Mikill fiskur er í vatninu, ½ ~ 3 punda bleikju sem er að finna um allt vatn, og 1-6 punda urriði sem heldur sig mikið við ósa Hranhafnarár, en þangað þarf að ganga.

Leyfilegt er að veiða með maðki, flugu, og spón í Hraunhafnarvatni.

Leyfilegt er að tjalda á eigin ábyrgð á gömlu túni við vatnið, en stutt er í mjög gott skipulagt tjaldstæði á Raufarhöfn. Einnig er hægt að athuga með gistingu á Hótel Norðurljósum eða á Gistihúsinu Hreiðrið www.nesthouse.is, sem er staðsett á Raufarhöfn.
Handhöfum Veiðikortsins ber að vera með kortið og skilríki á sér og tilbúnir að sýna það veiðiverði þegar hann vitjar veiðimanna. Það er stranglega bannað að skilja eftir sig rusl og aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Óskað er eftir að því að menn sendi upplýsingar um afla með tölvupósti á netfangið veidikortid@veidikortid.is.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum: Halldór Þórólfsson S: 863-8468.

Hraunhafnarvatn – Vinsælar flugur:

 

 

x

Check Also

Langavatn – Skagaheiði

Langavatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, ...