Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Austurlandi / Skriðuvatn í Skriðdal
  • Skriðuvatn í Skriðdal

    Glæsilegir urriðar í bland við bleikju

  • Skriðuvatn í Skriðdal

    Glæsilegir urriðar í bland við bleikju

  • Skriðuvatn í Skriðdal

    Glæsilegir urriðar í bland við bleikju

  • Skriðuvatn í Skriðdal

    Glæsilegir urriðar í bland við bleikju

  • Skriðuvatn í Skriðdal

    Glæsilegir urriðar í bland við bleikju

Skriðuvatn í Skriðdal

Skriðuvatn er efst í Skriðdal í S-Múlasýslu, og er um 1,25 km² að stærð, dýpst er það um 10 m, og liggur í 155 m hæð yfir sjávarmáli. Í vatnið renna Öxará, Forvaðará og Vatnsdalsá og úr Skriðuvatni fellur Múlaá.

Þjóðvegur 1 liggur meðfram Skriðuvatni, sem er í 35 km fjarlægð frá Egilsstöðum, 50 km frá Breiðdalsvík og 50 km frá Djúpavogi um Öxi.
Nokkuð mikið er af vænum urriða í Skriðuvatni, allt að 5 punda fiskar, en einnig veiðast þar bleikjur.

Vatnasvæðið, sem um ræðir, er Skriðuvatn að austanverðu í landi Vatnsskóga. Það er svæðið þar sem Skriðuvatn fellur í Múlaá og öll strandlengja vatnsins að austan, allt að Öxará. Einnig er veiðiréttur í austanverðri Múlaá, frá upptökum árinnar, og 250 metra niður ána allt að merktum landamerkjastólpa. Einnig er heimilt að veiða í Öxará að austanverðu þar sem áin fellur í Skriðuvatn og upp eftir ánni. Ákjósanlegt er að stunda veiðar með flugu í lóni sem fellur úr vatninu og í Múlaá.

Eingöngu er stangaveiði heimil og þá eingöngu frá bökkum og er öll netaveiði stranglega bönnuð.

Daglegur veiðitími er frá kl 8:00 til kl 22:00 út tímabilið sem spannar frá 1. júní til 31. ágúst, og er nokkuð jöfn veiði út tímabilið.
Löglegt agn í Skriðuvatni er fluga, maðkur, og spónn.

Veiðikortshafi hefur heimild til að tjalda endurgjaldslaust í landi Vatnsskóga, enda gangi hann snyrtilega um land og gróður. Þar er þó hvorki að finna skipulagt tjaldstæði né hreinlætisaðstöðu. Einnig er hægt að kaupa gistingu á Egilsstöðum, Breiðdalsvík og Djúpavogi.
Handhafar Veiðikortsins geta farið beint til veiða, en verða að hafa Veiðikortið við höndina til að sýna veiðiverði, þegar hann vitjar veiðimanna. Eitt barn undir fermingu veiðir frítt – greiði fullorðinn veiðileyfi eða sýni Veiðikortið.
Veiðivörður / umsjónarmaður: Bragi Björgvinsson á Víðilæk s: 864 1820, Ívar Björgvinsson á Djúpavogi s: 894 8289 og Laufey Sólmundsdóttir, Vatnsskógum í Skriðdal.

Skriðuvatn – Vinsælar flugur:

x

Check Also

Fögruhlíðarós

Fögruhlíðarós er austast í Jökulsárhlíð og tilheyrir Ketilstöðum í um 660 km fjarlægð frá Reykjavík, og í um 60 km fjarlægð frá Egilsstöðum. Fögruhlíðarós er ...