Heim / Forsíða / Úlfljótsvatn – Vesturbakkinn
  • Úlfljótsvatn - vestubakkinn

    Einstaklega gjöfult veiðivatn

  • Úlfljótsvatn - vestubakkinn

    Einstaklega gjöfult veiðivatn

  • Úlfljótsvatn - vestubakkinn

    Einstaklega gjöfult veiðivatn

  • Úlfljótsvatn - vestubakkinn

    Einstaklega gjöfult veiðivatn

  • Úlfljótsvatn - vestubakkinn

    Einstaklega gjöfult veiðivatn

Úlfljótsvatn – Vesturbakkinn

Úlfljótsvatn er einstaklega skemmtilegt veiðivatn sem er staðsett í Grafningi, sunnan Þingvallavatns.

65 km fjarlægð frá Reykjavík ef farið er um Hellisheiði eða Þingvelli en 40 km. ef farin er svokölluð Nesjavallaleið.

Úlfljótsvatn er í raun efsti hluti Sogsins, milli Írafoss- og Steingrímsstöðvar. Veiðisvæðið er vestari hluta vatnsins að undanskildu því landsvæði sem Útilífsmiðstöð Skáta hefur til umráða.

Úlfljótsvatn er bergvatn, enda afrennsli Þingvallavatns. Töluverður straumur er í vatninu þar sem gegnumrennsli er að meðaltali 90 þúsund lítrar á sekúndu. Vatnið er um 4 km2 að stærð og yfir 20 m. djúpt þar sem það er dýpst. Úlfljótsvatn stendur í 80 metra hæð yfir sjávarmáli en til samanburðar er Þingvallavatn í 100,5 metra hæð.

Rétt er að benda á heimasíðu Veiðifélags Úlfljótsvatns, þar eru finna frekari upplýsingar um svæðið.

Orkuveita Reykjavíkur á jörðina Úlfljótsvatn en henni tilheyrir um helming vatnsins. Heimilt er að veiða í landi OR sem er vestari hluti vatnsins, þeim megin sem Úlfljótsvatnskirkja er, að undanskildu því svæði sem Skátarnir hafa til umráða.  Veiðisvæðið nær í norður að landamerkjum við Steingrímsstöð og í suðri að landamerkjum við Írafoss.  Merkingar aðgreina hvar má veiða.

Á síðastliðnum árum gilti Veiðikortið fyrir landi Efri-Brúar, austantil við vatnið, en nú er sem fyrr segir veiðisvæðið umtalsvert stærra við vestari hluta vatnsins.

Í vatninu veiðist mest af bleikju, en einnig nokkur urriði.  Algengasta stærð fiskanna er hálft til tvö pund, en veiði á stærri fiski hefur aukist hin síðari ár og heyrast á hverju ári sögur af 6 ~ 7 punda bleikjum og urriðum sem slaga í 14 ~ 15 pund.

Leyfilegt er að veiða frá klukkan 7 til klukkan 23 út tímabilið sem nær frá 1. maí fram til 30. september, en besti veiðitíminn er frá miðjum júní fram í miðjan ágúst.

Einungis er heimilt að nota flugu, maðk, og spón sem agn.

Hægt er að kaupa gistinu á skipulögðu tjaldsvæði Skátanna, en þar er mjög góð aðstaða til útilegu. Frekari upplýsingar má finna á www.ulfljotsvatn.is , meðal annars hvað snertir margs konar afþreyingu á staðnum, s.s. bátaleigu og þess háttar. Frábær dvalarstaður fyrir fjölskylduna að dvelja en margt er í boði á svæðinu fyrir alla meðlimi hennar. Nánari upplýsingar á www.ulfljotsvatn.is
Reglur: Snyrtileg umgengni er skilyrði og bannað er að skilja eftir rusl við vatnið. Allur akstur utan vega og slóða er stranglega bannaður og verður slíkt athæfi kært til lögreglu.

Veiðikortshafar sem valda umhverfisspjöllum eru ábyrgir gagnvart landeiganda. Veiðiskýrslu ber að fylla út of skila í þar til gerðan merktan kassa við bæinn Úlfljótsvatn. Í þeim kassa verður hægt að nálgast veiðikort og veiðiskýrslu. Veiðiskýrslur er einnig hægt að sækja á vef Veiðikortsins og prenta út.

Ef veiðist fiskur, sem er merktur Veiðimálastofnun, ber að geta þess í veiðiskýrslu. Ekki er heimilt að koma með eigin báta til veiða í Úlfljótsvatni. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Nánari upplýsingar um svæðið má finna á heimasíðu Veiðifélags Úlfljótsvatns.

Úlfljótsvatn – Vinsælar flugur:

Skemmtilegar myndir frá svæðinu:

x

Check Also

Elliðaár – vorveiði

Elliðaár eru ár sem renna frá Elliðavatni skammt frá Reykjavík, um Elliðaárdal og út í Faxaflóa. Árnar kvíslast og því heita þær Elliðaár en ekki ...