Sauðlauksdalsvatn

Sauðlauksdalsvatn er í Vestur-Barðastrandasýslu á Vestfjörðum, í nágrenni Patreksfjarðar. Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 380 km og 28 km frá Patreksfirði.   Með því að taka ferjuna Baldur yfir Breiðafjörð er hægt að stytta vegalengdina til muna, eða um 150 km. Sauðlauksdalsvatn er um 0,35 km2 að flatarmáli og stendur í um 10m hæð yfir sjó.  Gott aðgengi er að vatninu, en aðeins má aka eftir merktum slóðum. Það má veiða í öllu vatninu, en aðallega er veitt þeim megin sem komið er að vatninu. Sauðlauksdalsvatn hentar vel fyrir fluguveiði, enda er auðvelt að vaða aðeins út í gulum sandinum.…

Umsögn Veiðistaðavefsins

Aðkoma að veiðistaðnum
Veiði
Veiðistaðamerkingar
Almenn ánægja

Mjög gott

Umsögn : Kíkti í Sauðlauksdalsvatn í boði veiðifélagsins. Vatnið kom á óvart, en þetta var í fyrsta sinn sem ég hef veitt á hvítum sandi. Urriðinn var vel vænn, en uppistaðan var bleikja. Helst var fiskurinn að taka þar sem áin rennur í vatnið

Sauðlauksdalsvatn er í Vestur-Barðastrandasýslu á Vestfjörðum, í nágrenni Patreksfjarðar.

Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 380 km og 28 km frá Patreksfirði.   Með því að taka ferjuna Baldur yfir Breiðafjörð er hægt að stytta vegalengdina til muna, eða um 150 km.

Sauðlauksdalsvatn er um 0,35 km2 að flatarmáli og stendur í um 10m hæð yfir sjó.  Gott aðgengi er að vatninu, en aðeins má aka eftir merktum slóðum.

Það má veiða í öllu vatninu, en aðallega er veitt þeim megin sem komið er að vatninu. Sauðlauksdalsvatn hentar vel fyrir fluguveiði, enda er auðvelt að vaða aðeins út í gulum sandinum.

Heimilt er að tjalda við vatnið á eigin ábyrgð ,en engin hreinlætisaðstaða er á svæðinu. Þó stendur til að koma upp hreinlætisaðstöðu þar fyrir sumarið.  Einnig er að kaupa gistingu á gistiheimilum á Patreksfirði.

Í vatninu er bleikja, bæði sjógengin og staðbundin.  Einnig er vænan urriða að finna í vatninu og hafa menn verið að veiða allt að 16 punda stykki. Uppistaðan í bleikjuveiðinni er 1-1,5 pund að þyngd.

Heimilt er að veiða allan sólarhringinn, og er veiðitímabilið frá því ísa leysir og fram á haust, og er besti veiðitími að öllu jafna kvölds og morgna

Leyfilegt agn í Sauðlauksdalsvatn er fluga, maðkur og spónn.

Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar.  Bannað er að veiða í ánni sem rennur í vatnið.  Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.  Veiðimenn fara beint inn að vatni og hafi Veiðikortið við höndina þegar veiðivörður vitjar gesta.  Veiðimönnum ber að skila veiðiskýrslum á netinu, www.veidikortid.is

Sauðlauksdalsvatn – Vinsælar flugur:

 

 

x

Check Also

Miðdalsá í Steingrímsfirði

Miðdalsá í Steingrímsfirði er skemmtileg á í Kirkjubólshreppi, Strandasýslu. 230 km fjarlægð frá Reykjavík og einungis í um 12 km fjarlægð frá Hólmavík. Hún á ...