Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Rekavatn – Skagaheiði
  • Rekavatn á Skaga

    Strandlón á norðvestanverðri Skagatá með gómsætri sjóbleikju

Rekavatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Rekavatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Rekavatn er staðsett á norð-vestanverðri Skagatánni og er í raun strandlón sem er um 0,9 km2 að flatarmáli og um 3 m að dýpt.
Það er lítil sem engin stangveiði í þessu vatni, en sjóbleikja er í vatninu sem að mestu er veidd í net. Mikið æti er í vatninu sem kemur frá sjónum sem gerir það að verkum að stangaveiði er erfið í Rekavatni.

Vatnið liggur um 700 metra norðan við þjóðveginn.

Veiðiréttur og veiðileyfi er á bænum Höfnum hjá Vigni A. Sveinsyni.

Rekavatn – veðrið á svæðinu

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...