Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Ölvesvatn – Skagaheiði
  • Ölvesvatn - vatnasvæði Selár

    Veiðiparadís á Skagaheiði

  • Ölvesvatn - vatnasvæði Selár

    Veiðiparadís á Skagaheiði

  • Ölvesvatn - vatnasvæði Selár

    Veiðiparadís á Skagaheiði

  • Ölvesvatn - vatnasvæði Selár

    Veiðiparadís á Skagaheiði

Ölvesvatn – Skagaheiði

Ölvesvatn (vatnasvæði Selár) er á Skagaheiði, í Skefilsstaðahreppi í Skagafirði í um 340 km fjarlægð frá Reykjavík og um 40 km fjarlægð frá Sauðárkróki.
Aðkoman að vatninu er eftir um 6 km löngum jeppaslóða frá afleggjaranum við Hvalsnes og að Ölvesvatni.

Ölvesvatn er langstærsta vatnið á vatnasvæði Selár, um 2,8 km2 að stærð og nokkuð djúpt.

Veiði er heimil á öllu vatnasvæðinu, þ.e.a.s. Ölvesvatni, Fossvatni, Selvatni, Heyvötnum, Grunnutjörn, Andavatni, Stífluvatni, Eiðsá, Fossá , auk lækja sem renna á milli vatna út tímabilið sem nær frá seinnihluta maí og stendur fram á haust.
Yfirleitt er ekki orðið fært upp að vatni fyrir en seinnihluta maí og stendur veiðitíminn yfirleitt fram í miðjan september, en þá veiðist minna af bleikju.

Á vatnasvæðinu er bæði bleikja og urriði. Mikið er af ½ – 3 punda fiski á vatnasvæðinu, ásamt urriða, sem getur orðið allt að 6-7 pund.

Heimilt er að veiða allan sólarhringinn og eingöngu er leyfilegt að nota er flugu, maðk, makríl og spón sem agn. Góð aðstaða er til fluguveiða við Ölvesvatn.

Reglur:
Aðgengi að veiðisvæðinu er takmarkað og öruggara að panta veiðleyfi fyrirfram til að tryggja sér aðgang. Bókanir með aðstöðuhúsi njóta forgangs, bæði hvað snertir húsin við Ölvesvatn og rishæðina í Skagavör. Handhöfum Veiðikortsins ber að skrá sig í Hvalnesi og fá lykil að svæðinu. Sýna þarf Veiðikortið og skilríki. Netaveiði er stranglega bönnuð svo og meðferð skotvopna. Einnig er stranglega bannað að skilja eftir sig rusl og aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Í Hvalnesi fá veiðimenn veiðiskýrslur til útfyllingar og upplýsingar um svæðið. Veiðiskýrslum og lyklum ber að skila við lok veiða í Hvalnesi.
Við Ölvesvatn er hægt að leigja tvö aðstöðuhús með eldunar- og gistiaðstöðu fyrir allt að 6 manns. Þar er kamar. Aðstöðuhúsin þarf að panta með fyrirvara hjá umsjónarmanni í Hvalnesi í síma 453-6520 eða GSM: 821-6520 eða með því að senda tölvupóst á hvalnes730@simnet.is.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:
Bjarni Egilsson og fjölskylda á Hvalnesi, S: 453-6520.

Ölvesvatn – Vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...