Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Leggjabrjótstjarnir – Arnavatnsheiði

Leggjabrjótstjarnir – Arnavatnsheiði

Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Leggjabrjótstjarnir eru á Arnarvatnsheiði en Arnarvatnsheiði og Tvídægra eru miklir heiðarflákar upp af Miðfirði og Hrútafirði, og þekja gríðarstórt landsvæði á hálendinu. Heiðarnar búa yfir mikilli gróðursæld, eru góð beitilönd, og fuglalíf er þar mikið.

Þarna eru gríðarlegur fjöldi vatna, ár og lækjarsprænur, og eru vötnin svo mörg að hægt er að segja þau vera óteljandi, líkt og stjörnurnar á himnum. Í flestum vötnunum, ám og lækjum er nokkuð mikil og góð fisksæld, en í sumum meiri en öðrum, eins og gengur og gerist.

Leggjabrjótstjarnir eru þrjár og liggur sú efsta suð-suðvestur við Hvannamó, en þarna eru 2 tjarnir sem tiltölulega stutt er á milli, báðar frekar grunnar og er mest um bleikju þarna, og oft hægt að gera sæmilega veiði.

Lækurinn Leggjabrjótur rennur svo í þriðju tjörnina, og þaðan er svo lítill lækur sem rennur í Veiðitjörn.

Leggjabrjótstjarnir liggja í um 530 metrum yfir sjávarmáli, og eru stærðirnar um 0.11 km2 að flatarmáli.

Upphafsmynd fengin af vef arnavatnsheidi.is

Leggjabrjótstjarnir – vinsælar flugur:

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...