Heim / Laxveiði / Laxveiði á Vesturlandi / Gljúfurá í Borgarfirði

Gljúfurá í Borgarfirði

Gljúfurá er í Borgarfirði í um 100 km fjarlægð frá Reykjavík og er sérstaklega skemmtileg þriggja stanga laxveiðiá í fögru umhverfi.

Hún á upptök sín í Langavatni á Mýrum. Reyndar er er affallið úr Langavatni áin Langá en fljótlega þá klofnar Glúfurá út frá Langá og rennur til vesturs en Langá til suðurs. Glúfurá rennur langa leið niður í Norðurárdal og sameinast Norðurá stutt frá ármótum Norðurár og Hvítár. Þjóðvegur 1 fer yfir Gljúfurá skammt frá Svignaskarði en þar rennur hún í gegnum gljúfrið sem hún tekur nafn sitt af. Yfir Gljúfurá liggja tvær brýr skammt frá hvor annarri, gamla og nýja brúin. Þar er gott að leggja bílum og má ganga upp og niður með ánni, þangað sem gljúfrið endar og áin fellur niður á jafnsléttu.

Veiðistaðir eru fjölmargir og fjölbreyttir og hentar áin vel fyrir veiði bæði á flugu og maðki. Gljúfurá hentar afar vel samstilltum hópum og fjölskyldum enda fylgir rúmgott og afar vel útbúið veiðihús seldum veiðileyfum.
Veiðisvæðið nær frá Klaufhamarsfossi að Norðurá og er u.þ.b. 13 km langt.

Tímabilið í Gljúfurá nær frá 25. júní og nær til 30. september, en veitt er á 3 stangir.

x

Check Also

Álftá á Mýrum

Álftá á Mýrum er lítil og nett laxveiðiá sem á upptök sín í jaðri Álftárhrauns. Áin fær einnig til sín vatn frá litlum stöðuvötnum í ...