Heim / Laxveiði / Laxveiði á Norðurlandi / Fljótaá, á með sjóbleikju og laxavon
  • Fljótaá í Fljótum

    Skemmtileg laxveiðiá og mikil bleikjuveiði

Fljótaá, á með sjóbleikju og laxavon

Fljótaá er sjóbleikju og laxveiðiá í Holtshreppi í Fljótum í Skagafjarðarsýslu í um 440 km fjarlægð frá Reykjavík og um 25 km fjarlægð frá Siglufirði.

Þetta er 8 km löng 4 stanga laxveiðiá sem einnig er mjög þekkt fyrir góða bleikjuveiði og á upptök sín í Stífluvatni.

Veiðisvæðið sjálft er um 5 km langt og eru merktir veiðistaðir um 65 með nokkuð góðu aðgengi að flestum stöðum.

Það er ágæt laxagengd í Fljótaá og sjóbleikjuveiðin hefur oft verið segð með þeirri bestu á landinu.

Bæði staðbundin og sjógengin bleikja er í ánni.

Veiði síðustu ára hafa verið frá 200 til tæplega 500 laxar og bleikjuveiðin hefur verið á milli 1000 ~ 2000.

Eingöngu er leyfð veiði á flugu í Fljótaá út tímabili sem nær frá júlí og fram í september ár hvert og skal öllum laxi sleppt aftur. Hinsvegar má hirða bleikjur í hófi.

Veiðileyfum fylgir ákaflega notarlegt veiðihús með 5 herbergjum og svefnplássi fyrir 8 manns.

Þetta er uppgert ibúðarhús og er mjög vel búið til að veiðimönnum líði vel.

Nánari upplýsingar um veiðileyfi hjá Vigfúsi Orrasyni í síma 898 4229

Vinsælar flugur í Fljótaá

x

Check Also

Blanda 2, Austur-Húnavatnssýslu

Blanda 2 er annað svæðið í Blöndu, sem er jökulá í Austur-Húnavatnssýslu á Norðvesturlandi og rennur í gegnum Blönduós, í um 240 km fjarlægð frá ...